Takk Bragi fyrir frábæra salibunu í gegnum Mosfellsbæinn, við værum áreiðanlega enn fastir einhverstaðar við Kjarnann ef ekki hefði verið fyrir þína leiðsögn. Chris tók myndir, sem ég hendi upp einhverntíma eftir helgi ;)!
Fréttakerfið á núna að vera komið í þann farveg að þeir sem vilja geta póstað fréttum og tilkynningum í gegnum blogger. Sendið mér meil á atlividar hjá gmail.com fyrir aðgang. And for those english speakers out there - I have updated the news so now anyone who cares can access and write news through the Blogger service. Send me an email to atlividar at gmail.com for access!
Við ætlum nokkur að renna okkur í kvöld frá Mosfellsbæ inn að Austurvelli. Öllum er boðið með. Upphafsstaður hefur ekki verið ákveðinn, en verður annaðhvort póstaður hér eða á spjallið í dag. Ef ég gleymi því má hringja í mig í 8667597. Leggjum af stað frá Mosó svona 7-8.
Hve langt hefurðu rúllað á brettinu þínu? Ertu búinn að ná 300 kílómetra markinu?
Loaded vefurinn bloggar um Eric Lowell sem steig í fyrsta sinn á langbretti fyrir fjórum mánuðum síðan. Núna nýverið tók hann þátt í Long Distance keppninni Ultraskate IV með nokkrum langbretturum sem hafa verið í bransanum í lengri tíma og lenti í öðru sæti, eftir að hafa rennt sér rúmlega 300 kílómetra. Sigurvegarinn kláraði 386.2 kílómetra.
,,Two days later, I was walking around almost completely normal. It's pretty awesome to think you can go out and skate 187 miles and then can be almost back to normal just two days later." - Eric Lowell
Hér geturðu lesið um Eric og hans fyrstu fáranlega stóru skref inn í langbrettun.
Ef langferðir á longboardinu heilla þá er líka um að gera að kíkja á skatenewzealand.com og lesa um hina 2098km löngu ferð sem fjórir langbrettarar fóru á 44 dögum þverrt yfir Nýja Sjáland, síðastliðin janúar/febrúar. Dagbók ferðarinnar má lesa hér.
Eitt gott myndband í lokin af henni Ysabellu og Loaded Dervish brettinu hennar- .
Spjallið ætti nú að vera komið í loftið. Það gætu þó verið einhverjir böggar enn, við fíniserum þá innan næstu daga. Sumt er enn í ólagi á síðunni, en það lagast. Allar ábendingar sendist á atlividar hjá gmail.com.