Longboard.is

mánudagur, 14. júlí 2008

 

Hve langt hefurðu rúllað á brettinu þínu? Ertu búinn að ná 300 kílómetra markinu?

Loaded vefurinn bloggar um Eric Lowell sem steig í fyrsta sinn á langbretti fyrir fjórum mánuðum síðan. Núna nýverið tók hann þátt í Long Distance keppninni Ultraskate IV með nokkrum langbretturum sem hafa verið í bransanum í lengri tíma og lenti í öðru sæti, eftir að hafa rennt sér rúmlega 300 kílómetra. Sigurvegarinn kláraði 386.2 kílómetra.

,,Two days later, I was walking around almost completely normal. It's pretty awesome to think you can go out and skate 187 miles and then can be almost back to normal just two days later." - Eric Lowell


Hér geturðu lesið um Eric og hans fyrstu fáranlega stóru skref inn í langbrettun.

Ef langferðir á longboardinu heilla þá er líka um að gera að kíkja á skatenewzealand.com og lesa um hina 2098km löngu ferð sem fjórir langbrettarar fóru á 44 dögum þverrt yfir Nýja Sjáland, síðastliðin janúar/febrúar. Dagbók ferðarinnar má lesa hér.

Eitt gott myndband í lokin af henni Ysabellu og Loaded Dervish brettinu hennar-
.

Picture 6 Það verður sól næstu daga. Skelltu þér á brettið.

Efnisorð:


Ummæli: Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]





<< Heim

Söfn

júní 2008   júlí 2008   ágúst 2008   september 2008   nóvember 2008   janúar 2009   mars 2009  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Gerast áskrifandi að Færslur [Atom]